1

Veldu verslun

Smáralind

Velja
VALIÐ
2

Veldu leigutímabil

{{ currentPrice.days }}

Dagar

{{ currentPrice.price}} kr.

{{ currentPrice.price_discount}} kr.

+18% söluþóknun

VELDU
VALIÐ

Allur fyrirvari er gerður á bókuðum básum.
3

Veldu básategund

{{ currentBoothType.name }}
{{ currentBoothType.description }}

{{ currentBoothType.size }}

Valið
Velja
4

Veldu dagsetningu

5

Veldu staðsetningu

6

Þínar upplýsingar

Skilmálar

BÁSALEIGA

Bókanir

Hægt er að leigja bás í gegnum heimasíðuna okkar, www.Extraloppan.is, í verslun okkar eða símleiðis. Ekki er leyfilegt að vera með fleiri en einn bás bókaðan á sama tímabili ef verið er að selja nýjar vörur.

Afbókanir

Þegar þú pantar bás hjá Extraloppunni, hefur þú 14 daga frest til endurgreiðslu ef þér snýst hugur. Ef þú vilt nýta þér þann rétt mætir þú í verslun okkar í Smáralind og/eða sendir okkur tölvupóst á info@extraloppan.is og færð básinn endurgreiddan. Vinsamlegast athugaðu að þú færð básinn einungis endurgreiddan ef hann er afpantaður eða frestaður með að minnsta kosti 14 daga fyrirvara, og miðast það við fyrsta dag leigutímabils. Ekki er því hægt að fá endurgreitt ef það eru færri en 14 dagar í að leigutímabilið hefjist, óháð því hvenær básinn er pantaður.

Verð

Verðin sem gefin eru upp á heimasíðunni eru með virðisaukaskatti.

Þóknun

Þóknun (18%) verður sjálfkrafa dregin frá samanlagðri heildarsölu, áður en söluhagnaður er greiddur út til leigjenda bása.

Sjálfstæður rekstur

Ef þú sérð fyrir þér að reka þína eigin verslun í básnum, ertu sjálf/ur ábyrg/ur fyrir því að gefa upp réttar upplýsingar til skatts. Einnig ber að tilkynna Extraloppunni við bókun ef ætlunin er  að selja vörur frá VSK-skráðu fyrirtæki í básnum.

Á MEÐAN Á LEIGUTÍMA STENDUR 

Í upphafi leigutímabils 

Eftir að bás hefur verið bókaður, er hægt að setja hann upp 1 klst fyrir lokun daginn áður en leigutímabil hefst, þ.e. á mánudegi, þriðjudegi, miðvikudegi, fimmtudegi og föstudegi kl. 18.00, laugardegi kl. 17:00 og sunnudegi kl 16:00. Þegar þú ert skráð(ur) inn í "Extraloppan Mín" getur þú útbúið verðmiðana fyrir þær vörur sem þú ætlar að selja, einungis hægt að selja fullorðinsfatnað. Við mælum eindregið með að skjóta merkimiðum í flíkur og líma verðmiðana á þá í stað þess að líma beint á flíkina, það eru 30 merkimiðar innifaldir í leiguverðinu (hægt að kaupa aukalega 10stk á 100kr). Einnig er í boði að setja upp básinn 1 klst fyrir opnun á fyrsta degi leigutímabils eða kl 10.00 um morguninn alla daga vikunnar, nema sunnudaga kl. 11.00. Ef engar vörur hafa verið settar upp í básinn þegar líður á fyrsta dag leigutímabils er Extraloppunni heimilt að leigja básinn út til annars aðila, þ.e.a.s. ef ekki hefur gert fyrirfram samkomulag um annað. Ef það eru lokunardagar á því leigutímabili sem bás er bókaður reiknast þeir ekki með í heildardögum tímabils. Leigutímabilið er alltaf sá fjöldi daga sem valdir eru þegar bás er bókaður.

Ekki er heimilt að flytja bása til, né setja upp festingar í básunum, aðrar en þær sem fyrir eru. Ef vörum er stillt upp út fyrir eigin bás verða þær fjarlægðar án viðvörunar. Mikilvægt er að þú sjáir sjálf/ur um að allar vörur séu merktar rétt með strikamerkjum Extraloppunnar og þeim verðum sem þú hefur sett á vöruna.

Þjófavarnir

Ótakmarkað magn af þjófavörnum (venjulegar þjófavarnir, skó þjófavarnir og einnig límmiða þjófavarnir) fylgja með í leiguverðinu fyrir vörur sem eru verðlagðar yfir 1.500 krónum. Húsnæðið er vaktað með öryggismyndavélum, og starfsfólk okkar er almennt vakandi fyrir búðarþjófnaði. Extraloppan ber ekki ábyrgð á stolnum, týndum né eyðilögðum vörum og í tilfelli af eldsvoða og vatnsskaða er Extraloppan ekki bótaskyld. Innbústrygging þín bætir hugsanlega bruna/vatnsskaða eða þjófnað - hafðu samband við þitt tryggingafélag til að fá frekari upplýsingar um það.

Eignaréttur og vöruskilmálar

Seljandi er einn ábyrgur fyrir því að hafa ótakmarkaðan eignarétt á vörum sínum og rétt til þess að selja þær í básnum. Við mælum ekki með að selja notaðar snyrtivörur og/eða notaðar hárvörur (passa að þær eru ekki útrunnar), ólöglegar, falsaðar eða skaðlegar vörur, tóbak, áfengi, matvöru, vopn, flugelda, klámfengið efni eða aðrar vörur sem starfsfólk telur ekki við hæfi. Einnig er ekki heimilt að hafa vörur keyptar frá Ebay, Wish, Aliexpress o.s.frv., og þá sérstaklega vörur sem ekki eru vottaðar, til endursölu í Extraloppunni. Nafnspjöld eða önnur slík markaðssetning er ekki leyfileg í básnum. Ef þessu er ekki framfylgt verða vörur úr tilteknum básum fjarlægðar án fyrirvara. Starfsfólk hefur einnig rétt á að vísa frá eða fjarlægja vörur, sem metnar eru skaðlegar fyrir ímynd eða staðla verslunarinnar, eins og til dæmis skítugar, illa lyktandi eða götóttar flíkur eða brotnar vörur ásamt raftækjum sem ekki virka. Við leyfum okkur að meta í einstaka tilfellum ef vara er keypt “ónýt” eða “gölluð” að taka hana tilbaka ef bilun er ekki sjáanleg. Ath. að notuðum vörum sem keyptar eru í Extraloppunni fást hvorki skilað né skipt. Varan er keypt í því ástandi sem hún er í og er því á ábyrgð kaupanda eftir greiðslu. 

Skipulag og áfylling á bás

Í grundvallaratriðum ert þú sjálf/ur ábyrg/ur fyrir básnum þínum, og er þér velkomið að bæta við vörum á hann að vild á meðan á leigutíma stendur. Ef þú bætir vörum við á básinn þinn, kostar það 200 krónur að prenta út auka verðmiða þ.e. eina örk með 64 stk. Við mælum eindregið með að skjóta merkimiðum (30 stk fylgja með í leiguverði en 10 stk kosta svo 100kr) í flíkur og líma verðmiðana á þá í stað þess að líma beint á flíkina. Hillurnar í básunum eru eingöngu ætlaðar fyrir skó, töskur og aðra fylgihluti. Vinsamlegast ekki brjóta saman fatnað í þær, það bæði minnkar söluna á þínum bás og básnum við hliðiná og gerir okkur erfiðara fyrir að halda versluninni fínni. Einnig hefur þú möguleika á því að greiða aukalega fyrir tiltekt í bás á meðan á leigutíma stendur. Ef verðmiði hefur dottið af vöru eða vörur finnast í versluninni eftir að leigutíma er lokið, mun þeim verða komið fyrir á sérstökum "tapað og fundið" hillum. Því er skynsamlegt að fylgjast með þeim hillum og athuga hvort vörur úr þínum bás hafa endað þar. Einnig er ráðlagt að kíkja við í Extraloppunni eftir að leigutíma lýkur, þar sem margar vörur koma oftar en ekki í leitirnar þegar aðrir básaleigjendur pakka niður sínum básum. Vörur án verðmiða munu verða geymdar í "tapað og fundið" í að minnsta kosti í 14 daga, en eftir þann tíma verða þær í eigu Extraloppunnar sem hefur þá möguleikann á því að gefa þau til góðgerðarmála, selja þau eða ráðstafa þeim á einhvern hátt.

Breyta verðum

Ef óskað er eftir að breyta verðum á vörum á meðan á leigutíma stendur, þarf að setja nýjan verðmiða á vöruna. Verðmiðum sem hefur verið breytt eða strikað yfir eru ógildir af öryggisástæðum.

Afsláttur í básnum

Þú hefur möguleika á að setja afslátt á vörurnar í básnum þínum, og ef þess er óskað þarf að láta starfsfólk vita með því að senda okkur skilaboð á Facebook eða hringja í 787-4550 svo hægt sé að skrá inn afslátt á básinn inn í tölvukerfið. Eftir að afsláttur hefur verið settur inn kemur hann sjálfkrafa inn þegar vara er skönnuð. Afsláttarskilti eru afhent af starfsfólki verslunarinnar, og hægt er að velja á milli 25%, 50% eða 75% afslátt.

 

Í LOK LEIGUTÍMANS

Bás tæmdur

Básinn þarf að vera tómur í seinasta lagi 1,5 klst fyrir lokun á síðasta degi leigutímabils, þ.e. á mánudegi, þriðjudegi, miðvikudegi, fimmtudegi og föstudegi kl. 17.30, laugardegi kl. 16:30 og sunnudegi kl. 15.30. Þú ert sjálf/ur ábyrg/ur fyrir því að tæma básinn í lok leigutíma, nema að greitt sé sérstaklega fyrir þá þjónustu hjá Extraloppunni. Mikilvægt er að verðmiðar séu ennþá á vörunum þegar básinn er tæmdur, þar sem vörur án verðmiða má ekki taka með út úr versluninni. Starfsfólk hefur rétt á að athuga hvort verðmiðar séu á vörunum. Athugið að hafa skilríki meðferðis til að sýna starfsfólki þegar leigutímabili er lokið.

Ef básinn hefur ekki verið tæmdur á réttum tíma og ekkert samkomulag verið gert varðandi það, munum við hjá Extraloppunni sjá um að pakka vörunum niður og rukka fyrir það afgreiðslugjald sem nemur 5.000 krónum. Einnig hefur þú möguleika á því að kaupa þá þjónustu að tæma básinn, og kostar það 3.000 krónur þegar samið er um það fyrirfram. Við geymum vörurnar í viku að hámarki, en rukkum 1.000 krónur fyrir hvern dag sem vörurnar eru í geymslu hjá okkur. Eftir það eru þær í eigu Extraloppunnar.

Söluhagnaður greiddur út

Extraloppan greiðir út 82% af heildarsölunni til þín. Millifærslur eru yfirleitt framkvæmdar samdægurs eða daginn eftir að beiðni hefur verið lögð inn, en við gefum okkur allt að 3 virka sólarhringa til að greiða út söluhagnaðinn frá því greiðslu er óskað. Þóknun er 18% af heildarsölu. Ekki er æskilegt að biðja um millifærslu daglega nema það er fyrirfram ákveðið, best er að sækja um millifærsluna þegar leigutíma lýkur. Fyrir sakir starfsfólks Extraloppunnar, geymum við ekki stórar upphæðir reiðufés í versluninni, og getum við því ekki greitt söluhagnaðinn út í reiðufé. Ef einhverjar vörur gleymast í versluninni og seljast 14 dögum eftir að leigutímabil klárast, þá þarf að láta starfsmenn Extraloppunar vita eða sækja um millifærslu aftur svo hægt sé að greiða þann söluhagnað inná reikning eiganda. Útborgun af söluhagnaði verður að gerast innan 90 daga eftir að leigutímabili lýkur.

Persónuverndarstefna

Fyrirtækið skilur og virðir mikilvægi einkalífs á Internetinu, og því mun það ekki gefa upp upplýsingar um viðskiptavini/notendur til þriðja aðila, nema nauðsynlegt sé að framkvæma ákveðin viðskipti. Fyrirtækið mun ekki selja nafnið þitt, netfang, kreditkort eða persónuleg gögn til þriðja aðila án samþykki þíns.